- 450 gr gulrætur, skornar í litla bita
- 20 gr engifer, rifið niður
- 500 ml vatn
- 1 grænmetis súputeningur, lífrænn
- Salt og pipar eftir smekk
- 1 dós kókosrjómi, Biona coconut cream
Setjið allt saman í pott nema kókosrjómann og sjóðið í ca 10 min
Hellið í blandarann og maukið eða notið töfrasprotann
Færið aftur yfir í pottinn
Bætið næst við kókosrjómanum, ekki vökvanum, og hitið í ca 1-2 min
Gott að kreista smá sítrónu eða limesafa yfir súpuna þegar hún er borin fram
Einnig má sletta góðri olíu í hana
THERMOMIX
Gulrætur og engifer sett í skálin – 3 sek / 5 hraði
Bæta við vatni og kryddi – 10 min / 100°C / 2 hraði
Blanda að lokum – 1 min / 5 – 8 hraði, auka hraðan smátt og smátt
Bæta að lokum við kókorjómanum og – 10 sek / 4 hraði