Hugsaðu um heilsuna
Heilsa er líkamleg, andleg og félagsleg og því gott að huga að þessum þáttum þegar heilsurækt er annars vegar.
Vilji maður bæta heilsuna er öruggasta og þægilegasta aðferðin sú að vera á hreyfingu og huga að góðri næringu.
Með því að hreyfa sig má komast hjá löngum og ströngum megrunarkúrum, sem ræna mann orku og lífsþrótti.
Góð næring gefur þér ekki bara góða orku heldur bætir hún alla starfsemi líkamans, líffærin og lífið.