- 60 gr Erythritol eða Sukrin
- 150 gr haframjölshveiti
- 100 gr möndlumjöl
- 100 gr kókoshveiti
- 3 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk matarsodi
- 60 gr kalt smjör skorið í bita
- 350 + ml möndlumjólk
Setjið sykurinn í skálina til að gera flórsykur – 20 sek / 9 hraði
Bætið við öllu nema möndlumjólkinni – 50 sek / 4 hraði
Bætið þá við mjólkinni – 20 sek / 3 hraði
– bætið við smá og smá mjólk þar til degið verður þétt
Hnoðið ca 12 kúlur og penslið með eggjahvítu og stráið sesamfræjum yfir
Bakið við 140°C í 15-20 min, eða þar til smá gullin
Það er hægt að gera þessar skonsur án Thermomix
- Blandar öllum þurrefnum saman
- Hnoðar smjörinu saman með höndunum
- Gerir holu í miðjuna og hellir mjólkinni hægt og rólega saman við og hnoðar og hnoðar