- 3 bananar
- ¼ bolli kókosolía, mjúk
- 2 egg
- 1 bolli möndlumjólk
- 2 bollar spelt
- ½ bolli sukrin gold
- 3 msk kakóduft, sykurlaust
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk matarsodi
- 1 tsk salt
- 10 döðlur
- 30 pekan hnetur
Aðferð:
- Blandið þurrefnum saman í skál
- Blandið öllu þessu blauta saman í blandaranum
- Blandið svo þurrefnum saman við
- Að lokum blandið döðlum og pecanhnetum við með sleif
- Hellið í hringlaga form
Bakið við 170°C í 40 min eða þar til pinni sem stungið er í kemur þurr upp
Mjög gott eitt og sér eða með smjöri, smurosti, osti eða bananasneiðum